Pakkatilboð - Núna bjóðum við upp á 10% afsláttartilboð ef þú skráir þig á þrjú námskeið eða fleiri hjá okkur. Smelltu á "Pakkatilboð" til að fá frekari upplýsingar.
Höfuðbeina- og spjaldhryggjanám - Stig 1 (CST1) - Selfoss
Available spots
Course Description
Námskeið: Höfuðbeina -og spjaldhryggjarnám (CranioSacral Therapy -CST 1) - Fyrsta stig Hvenær haldið?: 4 - 7 mars 2027 Hvar er námskeiðið haldið?: Selfossi - Yogasálir Yogastúdíó - Eyravegi 35. Verð: 169.900kr Undanfari: Enginn Á þessu námskeiði er m.a. kennt: Líffærafræði höfuð- og spjaldhryggjarkerfissins er kennd, hvaða hlutverk mænuvökvinn hefur, heilahimnur og mænuslíður (Dura mater). Útskýrt er hvernig höfuð-og spjaldhryggjarkerfið er hálflokað vökvakerfi. Kennt er að skynja taktinn í mænuvökvanum, stöðva hann og lesa í viðbrögð líkamans. Fjallað um bandvefskerfi líkamans og hvernig losað er um spennu í því. Útskýrðar aðferðir til að losa um spennu í „þverhimnum“ líkamans (grindarbotn, þind, axlargrind, vefjum tengdum málbeini og hnakkagróf.) Kenndar eru aðferðir til að losa um höfuðbeinin og spjaldbeinið og nota þessi bein til að gefa okkur aðgang að heila- og mænuhimnum. Einnig er orkumiðlunartækni kennd. Mjög ítarleg vinnubók fylgir námskeiðinu. Undirbúningur fyrir þetta námskeið felst í lestri bókarinnar "Your inner physician and you" eftir Dr. John Upledger. Í henni útskýrir hann hvernig þetta meðferðarform kom til sögunnar og þróaðist í núverandi mynd. Einnig eru lesnir fyrstu sex kaflarnir í "CranioSacral Therapy" eftir John Upledger og Jon Vredevoogd. Undanfari námskeiðsins er enginn. Greiða þarf 30.000kr. staðfestingargjald við skráningu. Greiða þarf námskeiðið svo að fullu átta vikum áður en námskeiðið hefst. Hægt er að dreifa greiðslum með kreditkorti. Einnig minnum við á afláttarpakkann okkar ef gengið er frá skráningu á þremur eða fleiri námskeiðum í einu.






Upcoming Sessions
Contact Details
Eyravegur 35, Selfoss, Iceland
skraning@upledger.is
