top of page

CranioSacral Therapy (CST 1) - Fyrsta stig - VERÐ 149.900kr.

  • Starts Oct 12
  • 30.000 íslenskar krónur
  • Eyravegur 35 - Selfoss

Available spots


Lýsing á námskeiði

Námskeið: CranioSacral Therapy (CST 1) - Fyrsta stig Hvenær haldið?: 12-15 okt. 2023 - Kennt er alla dagana. Hvar er námskeiðið haldið?: Yogasálum Yogastúdíó, Eyravegi 35 - 800 Selfoss Verð: 149.900kr Undanfari: Enginn Á þessu námskeiði er m.a. kennt: Líffærafræði höfuð- og spjaldhryggjarkerfissins er kennd, hvaða hlutverk mænuvökvinn hefur, heilahimnur og mænuslíður (Dura mater). Útskýrt er hvernig höfuð-og spjaldhryggjarkerfið er hálflokað vökvakerfi. Kennt er að skynja taktinn í mænuvökvanum, stöðva hann og lesa í viðbrögð líkamans. Fjallað um bandvefskerfi líkamans og hvernig losað er um spennu í því. Útskýrðar aðferðir til að losa um spennu í „þverhimnum“ líkamans (grindarbotn, þind, axlargrind, vefjum tengdum málbeini og hnakkagróf.) Kenndar eru aðferðir til að losa um höfuðbeinin og spjaldbeinið og nota þessi bein til að gefa okkur aðgang að heila- og mænuhimnum. Einnig er orkumiðlunartækni kennd. Mjög ítarleg vinnubók fylgir námskeiðinu. Undirbúningur fyrir þetta námskeið felst í lestri bókarinnar "Your inner physician and you" eftir Dr. John Upledger. Í henni útskýrir hann hvernig þetta meðferðarform kom til sögunnar og þróaðist í núverandi mynd. Einnig eru lesnir fyrstu sex kaflarnir í "CranioSacral Therapy" eftir John Upledger og Jon Vredevoogd. Undanfari námskeiðsins er enginn. Verð fyrir námskeiðið er 149.900kr. Greiða þarf staðfestingargjald 30.000kr. til að tryggja sér pláss á námskeiðinu. Þetta gjald er óendurkræft. Þátttakandi fær svo sendan greiðsluseðil í heimabanka sinn fyrir afgangi af verði námskeiðs eða 119.900 kr. með gjalddaga/eindaga einni viku áður en námskeið hefst. ATH: Hægt er að fá greiðsludreifingu í allt að 36 mánuði ef greitt er með KREDITKORTI.


Upcoming Sessions


Contact Details

  • Eyravegur 35, Selfoss, Iceland

    848 7091 / 898 1099

    skraning@upledger.is

bottom of page