Upledger skólinn á Íslandi  
     
 
Skólinn
Um skólann
Nįmiš
Nįmsįętlun
Veršskrį
Skrįning
Skyldunįmskeiš
Sérnįmskeiš
Stašsetning nįmskeiša
Skjöl og greinar
Bókalisti
Um mešferšina
Höfušbeina og spjaldhryggjarmešferš
Uppruni mešferšarinnar
Hjįlparhendur
Um hjįlparhendur
Hafšu samband
 

Höfuðbeina og spjaldhryggjarkerfið


Höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfið eru þær himnur sem umlykja miðtaugakerfið (heili og mæna) og hafa beinfestu á höfuð-beinum og spjaldhrygg. Innan þessara himna er mænuvökvinn sem nærir og ver miðtaugakerfið. Vegna taktfastrar hreyfingar mænuvökvans, sem talið er að orsakist vegna framleiðslu og frásogs hans, myndast hreyfing á þessum himnum. Þá hreyfingu er hægt að greina með snertingu hvar sem er á líkamanum. Þessi taktfasti sláttur í mænuvökvanum er u.þ.b. 6 - 12 slög á mínútu.

Vegna festinga himnanna við höfuð- og spjaldbein þjóna þessi bein mikilvægu hlutverki í umgjörð miðtaugakerfisins.
Ef spjaldbeinið situr ekki rétt í mjaðmagrindinni, eða höfuðið liggur ekki nákvæmlega rétt á liðflötum efsta hálsliðar, má búast við röngu álagi í himnunum sem umlykja mænuna. Það getur valdið áreiti á allar taugar sem liggja út úr henni og getur valdið hinum ólíkustu einkennum, hvar sem er í líkamanum, því taugarnar þjóna honum öllum.

Hið sama á við um höfuðbeinin. Höfuðkúpan er samsett úr mörgum beinum, sem eru aðskilin við fæðingu en ná síðan saman og mynda beinsaum sín á milli. Hin hefðbundna skýring er sú að við sjö ára aldur hafi beinin saumað sig saman og séu í raun orðin ein samsoðin heild. Í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð er gengið út frá því að beinsaumurinn sé í raun bandvefsliðamót sem bjóða upp á hreyfingu beinanna. Þetta er ekki mikil hreyfing en höfuðkúpan þenst samt út og dregst saman við hreyfingu mænuvökvans. Ef hins vegar einhver hindrun verður á hreyfingu höfuðbeinanna, eða það er röng afstaða á milli þeirra, hefur það áhrif á himnurnar sem liggja fyrir innan og getur aftur haft áhrif á starfsemi miðtaugakerfisins og hinar 12 tvenndir heilatauga.

Við kjöraðstæður hjá heilbrigðum einstaklingi er ekkert sem hindrar þessa hreyfingu í mænuvökvanum, þar af leiðandi er engin hindrun á milli miðtauga og úttaugakerfis. Margt sem getur þó farið úrskeiðis og myndast hindranir, og þar með erting á taugakerfið. Höfuðbein geta aflagast vegna höggs, hnakkabein getur aflagast á efsta hálslið við fæðingu en slík skekkja lagast ekki sjálfkrafa. Mikil staðbundin spenna í bandvef, vegna sjúkdóma, skurðaðgerða, höggs, streitu eða annars konar áfalla getur einnig leitt til spennu í himnunum.

Höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfið er lifeðlisfræðilegt kerfi, sem er tiltölulega nýlega uppgötvað. Það samanstendur af himnum sem umlykja miðtaugakerfið (heila og mænu), þeim beinum sem himnunar hafa beinfestu á (höfuðbein og spjaldhryggur) og öðrum bandvef sem tengist himnunum beint. Einnig tilheyrir þessu kerfi heila- og mænuvökvinn sem nærir og ver miðtaugakerfið, og þau kerfi sem tengjast framleiðslu og frásogi heila- og mænuvökvans.

 

 
     
    2011 - Upledger į Ķslandi