Upledger.is
Forsíða
Höfuðbeina og Spjaldhryggjarmeðferð
Námið
Námskeið í boði
Aðrar meðferðir
Greinar
Hjálparhendur
Meðferðarstofan okkar
Hafa samband
Leita
Meðferðaraðilar á Íslandi
Upledger Stofnunin víða um heim
English
Námsefni/verslun
Póstlisti
Innskráning





Týnt lykilorð?
Námið PDF Prenta Rafpóstur
Nám í Upledger
Höfuðbeina og Spjaldhryggjarmeðferð

Nám í CranioSacral Therapy (höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð) hjá Upledger stofnuninni er byggt upp sem viðbótarnám fyrir starfandi heilbrigðisstéttir, meðferðaraðila og nema. Þar af leiðandi er námið byggt upp sem stutt, hnitmiðuð og krefjandi námskeið þar sem gert er ráð fyrir þekkingu á líffærafræði og siðferðilegum forsendum þess að ástunda líkamsmeðferð. Fagaðili sem sækir þessi námskeið nýtir því aðferðirnar innan síns faglega ramma og er ekki skuldbundinn til að klára námið. Hvert námskeið er sjálfstæð eining og viðurkennt sem viðbótarnám upp á 24 klukkustundir hjá fjölda fagfélaga á heilbrigðissviði víða um heim. Þeir sem stunda námið verða hins vegar að leggja á sig töluvert heimanám og láta líða a.m.k. þrjá mánuði á milli námskeiða til að geta tileinkað sér námsefni fyrra námskeiðs og undirbúa sig fyrir það næsta. Lágmarkstími námsins með undirbúningi er því um 15 mánuðir en mjög margir taka 3-4 ár í að klára.
Einnig er möguleiki að stunda þetta nám á Íslandi með útskrift í huga þótt þú sért ekki viðurkenndur meðferðaraðili eða heilbrigðisstarfsmaður sem er að bæta við sig nýrri þekkingu. Þessi námsbraut byggir á svipuðum áföngum í fjölbrautarskólunum og nuddbrautin gerir. Þessa áfanga verður síðan að taka jafnhliða náminu hjá okkur ásamt því að taka námskeiðin 5 (CSTI, CSTII, SERI, SERII og ADVI)og vinna undir markvissri leiðsögn reyndari aðila meðan á náminu stendur.

Próf og Viðurkenningar
Boðið er upp á þann valkost að taka próf í faginu. Prófin eru tvenn, Technique (aðferðarfræði) sem byggt er á námsefni fyrstu tveggja námskeiðanna og Diploma (útskrift) sem er byggt á öllu námsefninu. Að loknu Technique prófinu getur viðkomandi notað CST á eftir sínu nafni og CST-D að loknu Diploma prófi.

Önnur námskeið

Upledger stofnunin býður upp á fjölda námskeiða sem viðbótarnám við þetta námsferli og frekara framhaldsnám. Þau eru flest miðuð við að þú hafir lokið ákveðnum hlutum úr grunn námsskránni og hafir öðlast færni til frekara framhalds náms. Hér má nefna námskeið í meðhöndlun ungbarna en þar er krafist SER-I sem undirbúnings og "The Brain Speaks" sem er kennt í Flórída en þar er krafan SER-II. Einnig er annað slagið boðið upp á námsdaga þar sem ítarlega er farið í eitthvert ákveðið efni sem áður hefur verið kennt. Einnig bjóðum við upp á nám í öðrum aðferðum sem þó tengjast höfuð- og spjaldhryggjarmeðferðinni og eru viðurkenndar af International Alliance of Health Care Educators, IAHE.

 

 
© 2010 Upledger stofnunin á Íslandi