Upledger Stofnunin býður uppá kennsluverkefnið Hjálparhendur. Tilgangur verkefnisins er að kenna elstu börnum í leikskóla og yngstu börnum grunnskóla, viðeigandi og hjálplega snertingu, kallað Hjálparhendur.
Við að veita Hjálparhendur þá fá börnin sterkari tilfinningu fyrir að tilheyra og tengjast öðrum. Verkefnið örvar jákvætt og kærleiksríkt viðhorfs gagnvart félögum, og þar af leiðandi aukinni mælanlegri jákvæðri hegðun og minnkaðri andfélagslegri hegðun.
Dr.John E Upledger, stofnandi Upledger Stofnunarinnar, trúir að þetta verkefni muni auka samhyggð og minnka andfélagslega hegðun hjá krökkum á skólaaldri. Þegar samhyggð eykst, þá minnkar ofbeldi þar sem við getum ekki upplifað þessar tilfinningar á sama tíma, þ.a samhyggð og ofbeldi.
Verkefnið er algjörlega kostað af Upledger Stofnuninni á Íslandi. Upledger Stofnunin greiðir allann kostnað af ítarefninu sem fylgir verkefninu sem og útvegar einnig kennslu á verkefninu án nokkurs kostnaðar.
Hafir þú áhuga á að kynna þér verkefnið nánar eða að fá verkefnið í skólann þinn hafðu þá samband við okkur í hjalparhendur(hja)upledger.is eða í síma 863-0611